Hiti í síðustu kappræðunum fyrir sænsku kosningarnar
Mikill hiti einkennði síðustu sjónvarpskappræður leiðtoga sænsku flokkanna fyrir kosningarnar á sunnudag.
Allir átta flokkar sem eiga sæti á sænska þinginu mættust í hörðum orðahnippingum í kvöld í síðustu kappræðunum fyrir þingkosningarnar. Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmanna, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir skattalækkanir til hinna ríku á meðan hægriblokkin varaði við skattahækkunum ef vinstri menn nái völdum. Umræðuefni eins og efnahagsmál, menntun, umhverfismál og glæpatíðni voru fyrirferðarmikil. Spennan fyrir kosningarnar á sunnudag er mikil, en kannanir sýna að mjótt er á munum milli fylkinganna tveggja.

