James Bay kom fram ökklabrotinn á tónleikum Bon Jovi
Tónlistarmaðurinn James Bay lét ekki ökklabrot stöðva sig og mætti í gifsi á svið á Wembley til að hita upp fyrir Bon Jovi.

Breski tónlistarmaðurinn James Bay vakti athygli þegar hann kom fram á Wembley-leikvanginum á dögunum, þrátt fyrir að vera ökklabrotinn. Honum var ýtt út á svið á hjólastól með fótinn í gifsi til að flytja sett sitt áður en Bon Jovi stig á stokk. Aðdáendur fögnuðu kappanum sem sýndi að tónleikarnir yrðu að halda áfram þrátt fyrir meiðsli.



