Fjöldi slasaðra í lestarslysi í Frakklandi
Að minnsta kosti 44 manns slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar lest fór út af sporinu í Normandí-héraði í Frakklandi í dag.
Mikill fjöldi fólks slasaðist þegar lest á leið milli Rúðuborgar og Caen í Frakklandi fór út af sporinu í dag. Um 186 farþegar voru um borð og var neyðaráætlun virkjuð strax eftir slysið. Meðal hinna slösuðu er 18 ára stúlka sem er lífshættulega slösuð. Lögregla og yfirvöld rannsaka nú tildrög þess að lestin fór út af sporinu, en lestarstjórinn reyndist ekki hafa neytt áfengis eða vímuefna.

