KA gerði sér góða ferð í Fossvoginn
KA sigraði Víking með einu marki, 26-25, í spennandi leik í Olísdeild karla í handbolta í kvöld eftir að hafa verið með yfirhöndina lengst af.
KA sótti tvö stig í Fossvoginn í kvöld þegar liðið mætti Víkingi í Olísdeild karla í handbolta. Akureyringar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust í 9-1 yfir á 12. mínútu. Víkingar náðu þó að klóra í bakkann og minnka muninn í 12-9 í hálfleik. Leikurinn var spennandi undir lokin þar sem Víkingar minnkuðu muninn í eitt mark á lokasekúndunum en nær komust þeir ekki. Bjarni Ófeigur Valdimarsson var markahæstur hjá KA með fimm mörk.



