Nýtt ofur-meistaramót í frjálsum en Duplantis vinnur samt
Ultimate Championship meistaramótið átti að vera eitthvað nýtt í frjálsum íþróttum, en sumt breytist aldrei – stangarstökksstjarnan Armand Duplantis stal senunni.

Ultimate Championship meistaramótið átti að vera eitthvað nýtt í frjálsum íþróttum, en sumt breytist aldrei – stangarstökksstjarnan Armand Duplantis stal senunni. Nýjungar í keppnisfyrirkomulagi og glæsileg umgjörð dugðu ekki til að ýta heimsmeistaranum af stalli, sem sýndi enn og aftur yfirburði sína í greininni.



