Fordæma drónaárásir á olíuleiðslu
Yfirvöld í Sádi-Arabíu og Írak hafa fordæmt drónaárásir sem gerðar voru á mikilvæga olíuleiðslu í Sádi-Arabíu á fimmtudag.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja að drónaárásir hafi verið gerðar á olíuleiðslu sem liggur þvert yfir landið. Drónarnir eru taldir hafa komið frá Írak og ollu þeir skemmdum í héruðunum Riyadh og Medina. Stjórn Íraks hefur einnig fordæmt árásirnar og lofað að rannsaka hverjir standi að baki þeim, en notkun lofthelgi landsins til árása er stranglega bönnuð.


