Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en stjórnarmyndun verður flókin
Allt stefnir í æsispennandi þingkosningar í Svíþjóð þar sem vinstri og hægri blokkirnar berjast um völdin í skugga flokka sem fáir vilja vinna með.

Allt stefnir í að þingkosningarnar í Svíþjóð á sunnudag verði afar tvísýnar. Baráttan á milli vinstri og hægri fylkinganna er hörð, en tveir flokkar sem standa utan hefðbundinna blokkanna gætu gert stjórnarmyndun að loknum kosningum mjög erfiða. Ófyrirsjáanleiki einkennir sænsk stjórnmál á lokametrum baráttunnar.


