Ebólufaraldurinn heldur áfram að breiðast út í Kongó
Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur nú náð til sjöunda héraðs landsins, Suður-Ubangi. Yfir 3.300 manns hafa látið lífið í faraldrinum til þessa.
Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó heldur áfram að sækja í sig veðrið og hefur nú greinst í Suður-Ubangi héraði. Samkvæmt nýjustu tölum hafa 3.310 manns dáið úr veirunni af þeim tæplega sjö þúsund sem smitast hafa. Heilbrigðisyfirvöld hafa sett tæplega fjörutíu manns í einangrun eftir að smitaður einstaklingur lést í héraðinu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur kallað eftir auknu fjármagni og mannafla til að reyna að hefta útbreiðsluna, en þörf er á þúsundum nýrra starfsmanna og fjölda sjúkrarúma.



