Farþegalest fór út af sporinu í Frakklandi – Tugir slasaðir
Að minnsta kosti 44 slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu í Normandí í norðurhluta Frakklands. Ung kona er í lífshættu eftir slysið.

Mikill viðbúnaður var í norðurhluta Frakklands í kvöld eftir að farþegalest fór út af sporinu á leið sinni milli Rouen og Caen í Normandí. Tilkynnt hefur verið um að minnsta kosti 44 slasaða, þar af einn alvarlega. Átján ára gömul kona var flutt með þyrlu á sjúkrahús og er hún sögð vera í lífshættu. Um 180 farþegar voru um borð þegar slysið átti sér stað, en talið er að orsökina megi rekja til tæknilegra örðugleiga á teinunum.


