Nepalar á Íslandi efna til góðgerðarmatarboðs eftir flóð
Nepalska samfélagið á Íslandi býður til góðgerðarmatarboðs á laugardaginn til að styrkja fólk sem á um sárt að binda eftir flóð í heimalandinu.
Hamfaraflóð í Nepal hafa valdið gríðarlegri neyð og enn er þúsunda manna saknað. Nepalar búsettir hér á landi hafa ákveðið að sameinast í stuðningi og munu halda sérstakan viðburð á laugardaginn þar sem afraksturinn rennur til hjálparstarfs í Nepal.
