Hætt við félagsskipti Richarlison til Vasco da Gama
Ekkert verður af félagsskiptum sóknarmannsins Richarlison til brasilíska liðsins Vasco da Gama að svo stöddu.

Fyrirhuguð félagsskipti Richarlison, sóknarmanns Tottenham, til Vasco da Gama hafa runnið út í sandinn. Mikil óvissa ríkir enn um framtíð brasilíska landsliðsmannsins hjá enska félaginu.



