Sjávarhiti við Spán aldrei mælst jafn hár
Hitastig sjávar við strendur Spánar náði sögulegu hámarki í sumar og hefur aldrei mælst jafnhátt samkvæmt nýjum gögnum.
Samkvæmt spænskum hafnaryfirvöldum hefur sjávarhiti við strendur landsins aldrei mælst eins hár og í ár. Reuters greinir frá því að hæsti hitinn hafi mælst 33,02 gráður við Baleareyjum í ágústbyrjun. Svipaða sögu er að segja frá Barselóna og Tarragona þar sem hitinn fór yfir 30 gráður. Þá hefur hitastig Atlantshafsins einnig verið óvenju hátt við norðurströnd Spánar í júní.


