„Talaðu eitthvað með þessu“
Ólafur Sigurðsson rifjar upp spennuþrunginn dag á fréttastofunni þegar hann var settur í beina útsendingu með stuttum fyrirvara.
Á miklum atburðadegi var allur fréttatíminn helgaður atburðarásinni og bein útsending stóð yfir tímunum saman. Fréttamaðurinn Ólafur Sigurðsson var kallaður beint af veitingastað til að lýsa stöðunni. Hann var settur í fundarherbergi með erlendan fréttaskjá fyrir framan sig og fékk þau einföldu fyrirmæli að lýsa því sem fyrir augu bar. Ólafur segir að þótt spenna havi verið á ritstjórninni hafi hann lagt áherslu á að miðla upplýsingum frekar en að dvelja við tilfinningar.