Fékk símtal frá yfirmanni eftir athæfi í Parísarhjóli
Breskur maður játaði ósæmilegt athæfi á almannafæri eftir að myndband af honum í Parísarhjóli á tónlistarhátíð fór í dreifingu á netinu.
Karlmaður í Bretlandi hefur gengist við því að hafa sýnt ósæmilega hegðun á tónlistarhátíðinni Download. Yfirmaður hans hafði samband við hann eftir að myndband af atvikinu fór eins og eldur í sinu um internetið og tilkynnti honum að allir gætu nú séð athæfi hans.



