Íslendingar í útlöndum þurfa að huga að ferðatryggingum – Trygging SÍ utan EES fellur niður

Ný lög um sjúkratryggingar taka gildi um áramót. Þeir sem eru sjúkratryggðir á Íslandi og ferðast utan EES-svæðisins munu ekki lengur njóta verndar Sjúkratrygginga Íslands frá 1. janúar.

RÚV Innlent12. september 2026 kl. 06:05
Íslendingar í útlöndum þurfa að huga að ferðatryggingum – Trygging SÍ utan EES fellur niður
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Ný lög um sjúkratryggingar taka gildi um næstu áramót. Þeir sem eru sjúkratryggðir hér á landi og ferðast til landa utan EES-svæðisins njóta þess ekki lengur að vera tryggðir hjá Sjúkratryggingum Íslands frá og með 1. janúar. Alma Möller heilbrigðisráðherra segir breytinguna vera til samræmis við önnur lönd, sérstaklega á Norðurlöndunum. Tryggingaverndin mun því velta á ferðatryggingum hvers og eins, en ábendingar hafa borist um að fólk með langvinna sjúkdóma eigi erfitt með að fá tryggingar. Kostnaður vegna veikinda erlendis getur hlaupið á tugum milljóna króna, en talið er að sparnaður ríkisins vegna breytingarinnar sé um 100 milljónir á ári. Íslendingar sem dvelja á Spáni eru hvattir til að kynna sér málin þar sem íslenskar sjúkratryggingar gilda aðeins á ríkisspítólum þar í landi.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 12. september 2026 kl. 06:05
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir