„Þetta er smá óraunverulegt“ – Þróttur og Grindavík/Njarðvík mætast í bikarúrslitum
Bikarúrslitaleikur kvenna í knattspyrnu fer fram í dag þar sem Þróttur og sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur mætast. Fyrirliðar beggja liða eru spenntir fyrir stóra leiknum á Laugardalsvelli.
Bikarúrslitaleikur kvenna er á dagskrá í dag þar sem Þróttur og Grindavík/Njarðvík eigast við. Aðeins eitt stig skilur liðin að í deildinni og má því búast við hörkuleik. Grindavík og Njarðvík sameinuðu krafta sína fyrir tveimur árum og er þetta í fyrsta sinn sem sameinað lið þeirra kemst í úrslit. Sigríður Emma Jónsdóttir, fyrirliði Grindavíkur/Njarðvíkur, segir þetta vera óraunveruleg upplifun en liðið er virkilega spennt. Þróttur lék síðast til úrslita árið 2021 og ætlar nú að bæta upp fyrir tapið gegn Breiðabliki á þeim tíma. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, segir liðið tilbúnara nú en þá. Leikurinn hefst klukkan 16:00 á Laugardalsvelli og verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV.

