Trump kominn til Írlands undir ströngu eftirliti
Donald Trump er lentur á Írlandi en vegna heimsóknarinnar hefur ein víðtækasta öryggisgæsla í sögu landsins verið sett á laggirnar.

Donald Trump er kominn til Írlands og mætti Simon Harris, forsætisráðherra Írlands, honum á flugvellinum í Dyflinni. Heimsóknin hefur kallað á gríðarlega umfangsmikla öryggisgæslu af hálfu írsku lögreglunnar, Gardai, sem er sögð ein sú stærsta sem landið hefur séð. Trump mun dvelja á Írlandi í nokkra daga en búast má við mótmælum víða um landið samhliða heimsókninni. Stjórnvöld hafa lagt mikla áherslu á að tryggja öryggi forsetans fyrrverandi á meðan dvölinni stendur.



