Hellisheiði lokuð til austurs vegna umferðarslyss
Vegagerðin greinir frá því að Hellisheiði sé lokuð fyrir umferð í austurátt vegna slyss sem þar varð.
Hellisheiði hefur verið lokuð fyrir allri umferð sem stefnir í austurátt eftir að alvarlegt umferðarslys átti sér stað á heiðinni. Upplýsingar um lokunina er að finna á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, en óvíst er hvenær verður hægt að opna fyrir umferð aftur.



