Kourani fékk styrki frá borginni og TR um árabil
Mohamad Thor Jóhannesson, áður Mohamad Kourani, fékk lengst af framfærslustyrk hjá Reykjavíkurborg áður en hann fór á bætur almannatrygginga.

Mohamad Thor Jóhannesson, sem áður hét Mohamad Kourani og var nýlega vísað úr landi með 30 ára endurkomubanni, þáði um langt skeið framfærslustyrki frá Reykjavíkurborg og síðar Tryggingastofnun ríkisins samkvæmt heimildum mbl.is.



