54 ára gömul kona eignaðist barn úr 22 ára gömlu fósturvísi
Grísk kona hefur eignast barn 54 ára gömul eftir að hafa notað fósturvísi sem hafði verið í geymslu í frosti í 22 ár.

Kona í Grikklandi hefur eignast barn, 54 ára gömul, eftir að hafa notað eigin fósturvísi sem hafði verið frystur fyrir 22 árum. Hún náði með þessu að nýta fósturvísinn áður en frestur stjórnvalda rann út.



