Veikur göngumaður fluttur með þyrlu af Snæfellsnesi
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan göngumann á Snæfellsnesi í dag og flutti á Landspítalann í Reykjavík.
Björgunarsveitir á Vesturlandi og þyrla Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út síðdegis vegna bráðra veikinda göngumanns við Geithellistungur á Snæfellsnesi. Maðurinn var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar.



