Þúsundir Jemena flýja nú hörð átök í heimalandinu
Um fjórtán hundruð manns flúðu frá Jemen til Djíbútí á einungis einum sólarhring vegna vaxandi stríðsátaka.

Ástandið í Jemen fer ört versnandi en tilkynnt hefur verið um mikinn flóttamannastraum yfir til Djíbútí á síðustu dögum. Átök milli stjórnarhersins og sveita Húta hafa færst í aukana, sérstaklega við vesturströndina, sem hefur neytt tugþúsundir manna til að yfirgefa heimili sín. Alþjóðlegar hjálparstofnanir hafa miklar áhyggjur af stöðu kvenna og barna í þessum hópum og kalla eftir auknum stuðningi.



