Alvarlegt ef ákveðnar fagstéttir geta lokað landinu með verkföllum

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, telur það alvarlegt fyrir efnahag landsins ef fagstéttir geta boðað til lamandi verkfalla þegar ekki er gengið að kröfum þeirra.

RÚV Innlent13. september 2026 kl. 10:02
Alvarlegt ef ákveðnar fagstéttir geta lokað landinu með verkföllum
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir flugvirkja hjá Icelandair hófst í gær. Forstjóri félagsins, Bogi Nils Bogason, segir stöðuna alvarlega og telur að vinnumarkaðsmódelið sé ekki sjálfbært ef einstakar fagstéttir geta nánast lokað landinu með aðgerðum sínum.

Kjarasamningur flugvirkja rann út í árslok 2025 og hefur deilan verið hjá ríkissáttasemjara síðan í febrúar. Flugvirkjar segjast hafa dregist aftur úr í launum en Bogi er því ósammála og segir kröfur þeirra vera langt umfram það sem boðið er á almennum markaði. Engar viðræður hafa átt sér stað við stjórnvöld um lagasetningu á verkfallið að svo stöddu.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 13. september 2026 kl. 10:02
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir