140 manna leitað eftir að ferja lenti í hrakningum við Indónesíu
Björgunarsveitir í Indónesíu leita nú 140 manns eftir að farþegaskip týndist í Jövu-hafi í vondu veðri á sunnudagsmorgni.

Björgunarsveitir í Indónesíu leita nú 140 manns af farþegaskipi sem týndist í Jövu-hafi eftir að hafa lent í vondu veðri á sunnudagsmorgni. Búið er að bjarga yfir 100 manns af skipinu Virgo Transport 8, en einn þeirra lést. Skipverjar og farþegar voru samtals yfir 240 talsins þegar sambandið rofnaði.



