Fornleifarannsóknir á Fljótsdalshéraði afhjúpa eyðibýli frá 12. öld
Fornleifafræðingar hafa lokið könnun á sex stöðum á Fljótsdalshéraði þar sem í ljós kom að sum býli fóru í eyði strax á 12. öld.
Vettvangsrannsókn á sex stöðum á Fljótsdalshéraði í ágúst leiddi í ljós merkilegar fornleifar. Fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands og gjóskulagafræðingar hafa rannsakað byggðaleifar sem sýna að sum býli á svæðinu fóru í eyði mun fyrr en áður var talið, eða strax á tólftu öld.


