Xi Jinping fær rauða dregilinn á BRICS-fundi í Nýju-Delí
Kínaforseti er mættur til Indlands á leiðtogafund BRICS-ríkjanna, sem þykir merki um batnandi samskipti Indlands og Kína.
Xi Jinping, forseti Kína, fékk hátíðlegar móttökur þegar hann kom til Nýju-Delí á fund þróunarríkjanna í BRICS-hópnum. Heimsóknin er sögð mikilvægt skref í átt að sáttum milli þessara stórvelda í Asíu.



