Rússar ráðast á lest með erlenda þjóðarleiðtoga
Lest á leið á milli Kænugarðs og Varsjár varð fyrir árás Rússa skömmu eftir að Carl Bildt hafði nýtt sömu leið.

Rússneskar hersveitir gerðu árás á lest sem notuð er til flutninga á milli Kænugarðs og Varsjár. Árásin átti sér stað á teinunum aðeins nokkrum mínútum eftir að Carl Bildt, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, og aðrir erlendir embættismenn höfðu nýtt leiðina til að snúa aftur af leiðtogafundi. Skemmdir urðu á eimreiðinni en ekki er vitað um manntjón.



