Trump segir eðlilegt að Norður-Írland sameinist Írlandi
Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir á golfmóti á Írlandi að það væri „eðlilegt“ að Norður-Írland sameinaðist Írlandi.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, viðraði þá skoðun sína á Irish Open golfmótinu á sunnudag að það væri aðeins eðlilegt að Norður-Írland sameinaðist Írlandi. Forsetinn fullyrti að margir væru sammála þessum ummælum hans.



