Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf
Landhelgisgæslan sendi tvær þyrlur á haf út í dag til að sækja veikan sjómann af erlendu þjónustuskipi.

Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út rétt fyrir hádegi í dag vegna veikinda hjá áhafnarmeðlim á erlendu þjónustuskipi sem statt er langt út af landinu. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Gæslunnar, staðfesti útkallið en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um líðan sjómannsins.



