Heilsufarsráðleggingar fyrir konur oft byggðar á rannsóknum á körlum
Sérfræðingar segja að ráðleggingar um heilsurækt og næringu fyrir konur hafi of lengi verið byggðar á gögnum úr rannsóknum sem takmarkast við karla.

Dr. Christopher Curtis greindi frá því á málstofu í Háskólanum í Reykjavík á dögunum að konur hafi í áratugi fengið ráðleggingar um heilsu og næringu sem eiga fremur við karla. Hann telur nauðsynlegt að auka rannsóknir sem taka sérstaklega mið af lífeðlisfræði kvenna til að tryggja réttar upplýsingar og bætta heilsu.


