Trump gerir lítið úr hættum gervigreindar
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vísað áhyggjum sérfræðinga um hættur gervigreindar á bug og segir þær vera orðum auknar.

Donald Trump hefur gagnrýnt þá sem vilja hægja á þróun gervigreindar og segir að neikvæð öfl séu að blása upp hættur sem muni aldrei raungerast. Hann leggur áherslu á að Bandaríkin verði að vinna kapphlaupið um þróun tækninnar, sérstaklega gagnvart Kína.



