Mikið endurnýjuð íbúð á Kársnesi til sölu
69 fermetra jarðhæð með stórum garði og palli er nú á sölu í vinsæla Kársneshverfinu í Kópavogi.

Fasteignamarkaðurinn í Kópavogi er líflegur og nú er komin á sölu áhugaverð eign á Kársnesinu. Um er að ræða 69 fermetra íbúð sem hefur verið mikið endurnýjuð. Fasteigninni fylgir sérstaklega stór og sólríkur pallur ásamt garði. Ásett verð er 65,9 milljónir króna.

