Hundruð manna flýja gróðurelda á eyjunni Brac
Miklir eldar geisa á króatísku ferðamannaeyjunni og hafa yfir 500 manns þurft að yfirgefa heimili sín.

Króatískir slökkviliðsmenn berjast nú við mikla gróðurelda á eyjunni Brac í Adríahafi. Um 500 manns, bæði íbúar og ferðamenn, hafa verið fluttir á brott af hættusvæðum. Eldurinn hefur breiðst hratt út vegna þurrka og vinds, og er unnið að því að verja byggð á þessum vinsæla áfangastað.



