Sænskir jafnaðarmenn með forystu í kosningaspám
Samkvæmt útgönguspám hafa sænskir jafnaðarmenn og vinstri blokkin forystu í þingkosningunum í Svíþjóð í dag.

Sænskir jafnaðarmenn og samstarfsflokkar þeirra á vinstri vængnum eru með forystu í sænsku þingkosningunum sem fóru fram í dag. Samkvæmt útgönguspá SVT er vinstri blokkin með 51,3% atkvæða, á meðan fylgi hægri flokka dregst saman. Niðurstöður kosninganna munu skýrast betur þegar líður á kvöldið.



