Barn lést í sprengingu í Sýrlandi
Barn fórst í nágrenni Damaskus í Sýrlandi þegar það snerti sprengju sem lá við vegkant.

Sýrlenskt barn lét lífið þegar sprengja sem lá við vegkant sprakk í nágrenni Damaskus. Barnið mun hafa snert hlutinn með fyrrgreindum afleiðingum. Atvikið er enn ein áminningin um þá hættu sem stafar af ósprungnum sprengjum á átakasvæðum í landinu.



