Líkamsárás og innbrot í Reykjavík í nótt
Lögreglunni var tilkynnt um ofbeldisverk í miðbænum og innbrot í nótt.

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt en tilkynnt var um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur sem og innbrot í fyrirtæki í nágrenninu. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu og er verið að afla gagna úr myndavélakerfum til að finna gerendur.

