Hátíðarstemning í Tungnaréttum
„Þetta eru jólin hjá okkur,“ segja heimamenn í Biskupstungum sem fjölmenntu í Tungnaréttir í gær. Um fjögur þúsund fjár var réttað í frábæru veðri og mikilli gleði.
Stemningin var einstök í Tungnaréttum í Biskupstungum um helgina þegar fjórum þúsundum fjár var smalað og réttað. Margir mættu til að taka þátt í þessum árlega viðburði sem einkennist af söng og samveru. Hinn sögufrægi Rússajeppi frá Tjörn, árgerð 1975, var á sínum stað sem nestisbíll og Brynjar Sigurðsson stýrði fjöldasöng sem ómaði um réttirnar.


