Reykur í húsi í Hafnarfirði
Slökkviliðið var ræst út vegna tilkynningar um reyk í húsnæði við Álfaskeið í Hafnarfirði síðdegis í dag. Fjórir slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang.

Útkall barst til slökkviliðsins um fjögurleytið í dag vegna reyks á Álfaskeiði í Hafnarfirði. Að sögn varðstjóra voru fjórir slökkviliðsbílar sendir á staðinn til að tryggja öryggi og kanna aðstæður, en reykur hafði sést í eða við húsnæðið. Engar fréttir hafa borist af slysum á fólki.

