Gríðarlega mjótt á munum í sænsku þingkosningunum
Staðan er afar tvísýn í sænsku þingkosningunum þar sem blokkirnar berjast um hvert einasta sæti. Útlit er fyrir að beðið verði fram í vikuna eftir endanlegum úrslitum.
Talning atkvæða í sænsku þingkosningunum stendur yfir og er staðan óvenju jöfn. Þegar 74% atkvæða höfðu verið talin leiddi rauða blokkin leiddi enn með einum þingmanni, 175 gegn 174 hjá bláu blokkinni. Búist er við að beðið verði eftir utankjörfundaratkvæðum og atkvæðum erlendis frá, sem gætu ráðið úrslitum síðar í vikunni. Hvorki Ulf Kristersson forsætisráðherra né Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna hafa gefið yfirlýsingar um úrslitin enn sem komið er.



