Bragi Valdimar gagnrýnir metnaðarleysi í hönnun hjá lögreglunni
Tónlistarmaðurinn Bragi Valdimar Skúlason segir metnaðarleysið hafa sigrað í tengslum við límmiða sem lögreglan dreifði til grunnskólabarna.

Bragi Valdimar Skúlason, tónlistarmaður og íslenskufræðingur, fer hörðum orðum um hönnun og vinnubrögð lögreglunnar í tengslum við límmiða sem gefnir voru börnum. Hann telur að fagurfræði og málfari sé verulega ábótavant og að metnaðurinn sé undir öllum lágmörkum. Bragi bendir á að smekkleysi virðist vera orðið ofan á þegar kemur að opinberri hönnun og prófarkalestri í þessum efnum.
