Rússnesk árás í Úkraínu nærri fyrrverandi forstjóra CIA
David Petraeus, fyrrverandi forstjóri CIA, var á lestarstöð í Úkraínu þegar drónaárás var gerð í nágrenninu. Engan sakaði í árásinni.

David Petraeus var staddur á lestarstöð þegar dróni hæfði skotmark í grenndinni. Önnur lest, sem flutti Boris Johnson, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og aðra tignarmenn, var nýfarin af stöðinni að sögn úkraínskra embættismanna. Úkraínska ríkisjárnbrautin birti myndir af skemmdum eimreið á Yahodyn lestarstöðinni eftir árásina.


