Hætturnar við heyrnartólnotkun á vinnustaðnum
Að hlusta á tónlist í vinnunni getur sent óheppileg skilaboð til samstarfsfólks og yfirmanna.

Notkun heyrnartóla á skrifstofum hefur aukist mjög, en hún getur haft neikvæðar aukaverkanir. Þótt margir telji sig vinna betur með tónlist í eyrunum, getur það gefið til kynna einangrun eða takmarkaðan vilja til samstarfs. Financial Times fjallar um hvernig heyrnartól geta skaðað samskipti og menningu á vinnustöðum ef ekki er gætt hófs.


