Braga Valdimari blöskrar: Þetta fá grunnskólabörn í hendurnar – „Smekkleysið hefur sigrað“
Textasmiðurinn Bragi Valdimar furðar sig á metnaðarleysi og hönnun límmiða sem lögreglan afhenti börnum.

Bragi Valdimar Skúlason, íslenskufræðingur og tónlistarmaður, hefur vakið athygli á límmiðum sem lögreglan hefur dreift til íslenskra grunnskólabarna nýverið. Bragi gagnrýnir hönnunina og málfarið á límmiðunum harðlega og segir það lýsa ákveðnu metnaðarleysi. Hann telur að betur hefði mátt standa að verki, sérstaklega þegar efni er ætlað börnum, og sagði á Facebook að „smekkleysið hafi sigrað“ í þessu tilfelli.



