Hnífjafnt í sænsku þingkosningunum
Mjög mjótt er á mununum milli hægri og vinstri blokkanna í Svíþjóð þegar 91 prósent atkvæða hafa verið talin.

Enn er gríðarleg spenna í sænsku þingkosningunum en þegar talið hefur verið úr 91 prósenti kjörkassa er nánast hnífjafnt á milli fylkinganna. Aðeins eitt þingsæti skilur á milli hægri og vinstri blokkanna. Möguleiki er talinn á að úrslit muni ekki liggja fyrir fyrr en í næstu viku þegar síðustu atkvæðin, þar á meðal utankjörfundaratkvæði, verða talin.



