Amazon stöðvar flutninga hjá félagi eftir banaslys í Miami
Amazon hefur tímabundið stöðvað samstarf við flutningafyrirtækið 21 Air eftir að flutningavél rann út af flugbraut í Miami með þeim afleiðingum að fólk lét lífið.

Amazon hefur tímabundið stöðvað alla flutninga með flutningafyrirtækinu 21 Air eftir að þota á vegum félagsins fór út af flugbraut á alþjóðaflugvellinum í Miami. Slysið átti sér stað í nýliðinni viku og hafnaði vélin á nokkrum bifreiðum með þeim afleiðingum að banaslys urðu. Talsmaður Amazon segir að öryggi sé í fyrirrúmi og starfsemin verði stöðvuð á meðan rannsókn á málinu stendur yfir.


