Skógareldar á Costa del Sol valda meiðslum og rýmingum
Þrír slösuðust í miklum skógareldum á Costa del Sol á Spáni, þar af er einn alvarlega brenndur. Um 50 manns þurftu að flýja heimili sín í fjalllendinu við Benhavis en yfirvöld hafa gefið út viðvaranir til þúsunda íbúa.
<p>Þrír slösuðust í skógareldum nærri Costa del Sol-ströndinni á Spáni í gær, þar af er einn með alvarlega brunaáverka.</p><p>Eldarnir kviknuðu í fjalllendinu við Benhavis og breiddust þeir hratt úr vegna vinda. Um 50 íbúar þurftu að yfirgefa heimili sín í Benhavis en ekkert eignartjón varð í skógareldunum.</p><p>Yfirvöld sendu út viðvörun til 9.500 íbúa og ráðlögðu fólki að halda sig heima af öryggisástæðum. Enn er mikil hætta á skógareldum á Spáni. Hæsti hiti ársins, 45,7°c, mældist í El Granado í Andalúsíu 2. september.</p><p>Samkvæmt upplýsingakerfi um evrópska skógarelda hafa 296.000 hektarar landsvæðis brunnið í skógareldum á Spáni á þessu ári.</p>



