Mývargur og veður tefja smölun fyrir sláturtíð

Sláturtíð fer rólega af stað hjá Kjarnafæði Norðlenska á Húsavík en áætlað er að slátra um 89 þúsund fjár í ár. Sigmundur Hreiðarsson sláturhússtjóri segir mývarg og óhagstætt veður hafa gert mönnum erfitt fyrir við að ná fénu af fjalli.

RÚV Innlent14. september 2026 kl. 05:04
Mývargur og veður tefja smölun fyrir sláturtíð
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

<p>Sigmundur Hreiðarsson, sláturhússtjóri Kjarnafæðis Norðlenska á Húsavík, segir að í ár verði slátrað ívið fleiri fjár heldur en í fyrra eða rúmlega 89 þúsund. Sláturtíðin fer þó rólega af stað. Sláturhúsið á Húsavík er eitt af fjórum stærstu sauðfjársláturhúsum landsins.</p><p>Sigmundur sagði í samtali við fréttastofu að sláturtíðin færi ágætlega af stað þó að brösulega gengi að ná fé inn til slátrunar. Helstu orsakir þess væru veðrið og mývargurinn sem gerði mönnum erfitt fyrir. Hann segir þó að sláturtíðinni verði lokið fyrir 10. október og ef þörf krefur verði líka slátrað um helgar. Hann á þó ekki von á því.</p>

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 14. september 2026 kl. 05:04
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir