Þrívíddarteiknuð kýr stal senunni í sumar
Notkun þrívíddarteiknaðra dýra í auglýsingum hefur aukist á Íslandi og í sumar vakti dansandi mjólkurkýr mikla athygli. Talið var of tímafrekt og flókið að nota lifandi kú í verkefnið og því var gripið til tækninnar.

Notkun þrívíddarteiknaðra dýra og annarra karaktera hefur ekki verið mjög algeng í auglýsingum á Íslandi. En í sumar var bætt þar úr þegar landsmenn gátu notið þess að sjá mjólkurkú dansa við lag.



