Fyrrum sendiherrabústaður leigður út fyrir milljón á mánuði
Utanríkisráðuneytið hefur leigt írska sendiráðinu í Ósló fyrrum embættisbústað Íslands á meðan endurbætur standa yfir á þeirra eigin bústað.
Utanríkisráðuneytið hefur frá því í janúar leigt út fyrrum embættisbústað íslenska sendiráðsins í Ósló til írska sendiráðsins. Leigan nemur um 1,1 milljón íslenskra króna á mánuði. Bústaðurinn, sem er 768 fermetrar, hefur verið á sölu síðan í fyrra en aðsetur sendiherrans var flutt í nýja íbúð á Aker Brygge.
