Svíar unnu báða titlana á Norðurlandamótinu í pool
Ragnar Grönsten og Louise Furberg tryggðu Svíum sigur í 10-ball á móti sem fram fór hér á landi.
Norðurlandamótið í pool var haldið á Billiard-barnum um helgina þar sem 42 keppendur öttu kappi í 10-ball. Svíinn Ragnar Grönsten vann sigur í karlaflokki eftir spennandi úrslitaleik gegn finnska keppandanum Otto Olkkonen. Í kvennaflokki hafði Louise Furberg betur gegn Miia Virtanen frá Finnlandi, og fóru Svíar því heim með báða meistaratitlana.



